Lífið

Maurice White látinn 74 ára að aldri

Birgir Olgeirsson skrifar
Maurice White.
Maurice White. Vísir/Getty
Stofnandi bandarísku hljómsveitarinnar EarthWind & FireMaurice White, er látinn 74 ára að aldri.

Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hafði heilsu hans hrakað síðastliðna mánuði eftir að hafa glímt við Parkinsons-sjúkdóminn. Hann greindist fyrst með taugahrörnunarsjúkdóminn á níunda áratug síðustu aldar sem varð til þess að hann ákvað árið 1994 að hætta að koma fram á tónleikum. 

Vísir/Getty
White stofnaði EarthWind & Fire ásamt bræðrum sínum Verdine og Fred og var einn af aðallagahöfundum sveitarinnar. Hann deildi söngvarahlutverki sveitarinnar ásamt Philip Bailey.

Á meðal þekktustu laga sveitarinnar eru Shining Star, Sing a Song, September og Boogie Wonderland

Bandið verður heiðrað á Grammy-verðlaunahátíðinni fimmtánda febrúar næstkomandi.

White hlaut á ferli sínum sex Grammy-verðlaun og 21 tilnefningu. EarthWind & Fire var tekin inn í frægðarhöll rokksins árið 2000. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×