Bílar

Matthew McConaughey í Lincoln auglýsingu tekinni upp á Íslandi

Finnur Thorlacius skrifar
Í sumar heimsótti leikarinn Matthew McConaughey Ísland í þeim tilgangi að leika í auglýsingu fyrir Lincoln. Í henni er Lincoln Continental, flaggskip Lincoln, hinn aðalleikarinn. Þessi bíll er mikill lúxusbíll og stór í sniðum. Í auglýsingunni er greinilega mest áherslan lögð á hve vel fer um farþega í aftursæti bílsins, enda sannkallaður forstjórabíll þar á ferð.

Sá sem sér um leikstjórnunina í þessum auglýsingum sem teknar voru upp á Íslandi eru ekki óþekktari maður en Wally Pfister sem leikstýrði “The Dark Knight” og “Inception”. Hér að ofan má sjá auglýsinguna með Matthew McConaughey og segja má að hann sé svo sannarlega hann sjálfur í henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×