Bílar

Maserati á flugi

Finnur Thorlacius skrifar
Maserati Alfieri Coupe á bílasýningunni í Genf.
Maserati Alfieri Coupe á bílasýningunni í Genf.
Ítalski sportbílaframleiðandinn Maserati seldi fleiri bíla á fyrri helmingi þessa árs en allt árið í fyrra og stefnir í 30.000 bíla sölu fyrirtækisins í ár. Dæmi um aðra eins velgengni bílaframleiðenda er vart að finna á þessu ári.

Það er frábær sala í bílgerðunum Quattroporte og Ghibli sem skýrir út þessa miklu söluaukningu. Maserati áformar að selja 75.000 bíla á ári frá og með árinu 2018 og því ætlar Maserati að ná með smíði lúxusjeppa. Nú er unnið að þróun þessa jeppa sem fengið hefur nafnið Levante og hefst framleiðsla á honum á næsta ári.

Ennfremur stendur yfir þróun tveggja sæta coupe bíls sem keppa á við Porsche 911 og fær sá bíll nafnið Alfieri. Sá bíll á að koma á markað árið 2016 og blæjuútfærsla hans ári seinna. Maserati hefur verið í eigu Fiat frá árinu 1993.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×