Fótbolti

Mascherano á förum til Kína

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mascherano hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Barcelona.
Mascherano hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Barcelona. vísir/getty
Eftir átta góð ár hjá Barcelona þá er Argentínumaðurinn Javier Mascherano á förum frá félaginu og til Kína.

Hann er búinn að semja við Hebei China Fortune og fer til Kína eftir tvo daga.

Mascherano er orðinn 33 ára gamall og kom til Barcelona frá Liverpool fyrir 17 milljónir punda árið 2010. Hann var áður hjá West Ham, Corinthians og River Plate.

Hjá Barcelona vann Argentínumaðurinn fjölhæfi 18 titla. Spænsku deildina vann hann fjórum sinnum og Meistaradeildina tvisvar.

Í Kína hittir hann fyrir landa sinn Manuel Pellegrini sem þjálfar liðið. Pellegrini var á sínum tíma stjóri Man. City.

Hér að neðan má sjá leikmenn Barcelona senda fallegar kveðjur til félaga síns.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×