Lífið

Mary-Kate og Sarkozy gengu í það heilaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mary-Kate Olsen og Olivier Sarkozy.
Mary-Kate Olsen og Olivier Sarkozy. vísir/getty
Hönnuðurinn Mary-Kate Olsen, 29 ára, og kærastinn hennar Olivier Sarkozy, 46 ára, gengu í það heilaga síðastliðinn föstudag í New York.

Mary-Kate og systir hennar Ashley Oslon slógu báðar í gegn á sínum tíma þegar þær voru þekktustu barnastjörnurnar í heiminum. Nú hafa þær báðar snúið sér að tískunni. Sarkozy er hálfbróðir Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands.

Athöfnin fór fram í húsnæði þeirra í New York og voru aðeins fimmtíu gestir viðstaddir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×