Innlent

María bregst við neyðarástandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þetta er í annað sinn sem sendifulltrúi Rauða krossins starfar í Grikklandi.
Þetta er í annað sinn sem sendifulltrúi Rauða krossins starfar í Grikklandi.
María Ólafsdóttir, sérfræðingur í heimilislækningum, er á leið til Grikklands á vegum Rauða krossins á Íslandi til að bregðast við neyðarástandi í norðurhluta landsins við landamæri Makedóníu en þar er um þessar mundir mikill fjöldi flóttamanna – flestir sem hafa flúið vopnuð átök í Sýrlandi og Írak.

María kemur til með að starfa í ERU-neyðarteymi finnska og þýska Rauða krossins sem mun sinna almennri heilsugæslu í bæjunum Cherso og Nea Kevala þar sem er talið að 8000 skjólstæðingar þurfi á aðstoð að halda. Neyðarteymið bregst þar með við kalli Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) um aðstoð við flóttafólk við landamæri Grikklands og Makedóníu.

Í fréttatilkynningu kemur fram að þetta sé í annað sinn sem sendifulltrúi Rauða krossins starfar í Grikklandi en Páll Biering, geðhjúkrunarfræðingur, starfaði um sjö vikna skeið í Idomeni á haustmánuðum 2015. Síðastliðinn vetur hefur Rauði krossinn á Íslandi, með dyggri aðstoð utanríkisráðuneytisins og íslensks almennings, veitt um 38 milljónum íslenskra króna til hjálparstarfs við flóttafólk í Grikklandi.

Þetta er önnur sendiför Maríu fyrir Rauða krossinn en áður starfaði hún á færanlegum heilsugæslustöðvum (Mobile Health Clinics) í Dohuk í Írak á vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC).

Straumur flóttafólks hefur legið í gegnum Grikkland á undanförnum misserum en síðan í febrúar á þessu ári hefur myndast stífla við landamæri Makedóníu eftir að síðarnefnda landið ákvað að loka landamærum sínum. Um 10 þúsund flóttamenn eru nú staddir í bænum Idomeni og um 10 þúsund fleiri í nærliggjandi bæjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×