Innlent

Margir hafa reynt að smygla sér í fótboltagolf að nóttu til

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Fótboltagolfvöllurinn í Grafarvogi hefur notið mikilla vinsælda í sumar.
Fótboltagolfvöllurinn í Grafarvogi hefur notið mikilla vinsælda í sumar. Vísir
Fjölmargir hafa á næturna lagt leið sína í Skemmtigarðinn Grafarvogi í því skyni að spila fótboltagolf á nýopnuðum velli þrátt fyrir að garðurinn loki um klukkan tíu á kvöldin. Þetta segir eigandi garðsins, Eyþór Guðjónsson í samtali við Vísi.

„Þetta byrjaði um leið og við opnuðum. Núna um helgina síðustu voru hér nokkrir hópar, menn mæta með eigin bolta og sumir með golfkylfur líka. Ætla að reyna að komast í ókeypis minigolf,“ segir Eyþór. Næturvörður er á staðnum yfir nóttina og sá vísar næturgestum í burtu enda kostar að nýta sér þjónustuna. Eyþór segir stóra hópa hafa komið til að spila fótboltagolfið á næturna, allt upp í tíu manns. „Heilu vinahóparnir eru að mæta hingað,“ segir hann hlæjandi. Eyþór er ansi sáttur við hversu vel fótboltagolfið hefur slegið í gegn en bjóst þó ekki við þessum tíðu næturheimsóknum.

Eyþór er hissa á næturheimsóknunum en sér viðskiptahliðina og íhugar nú að lengja opnunartíma garðsins.Vísir/Eyþór
Fótboltagolf hefur notið vinsælda um allan heim undanfarin ár en völlurinn sem um er rætt opnaði í lok júní síðastliðnum. Allt upp í sex geta spilað saman á hverri braut. Hver keppandi fær einn fótbolta, stillir honum upp og sparkar honum með fram brautinni. Sá sigrar sem fer brautirnar í fæstum spörkum.

„Það er ekki eins og þetta sé dýrt, það kostar fimmtán hundruð á manninn og þá máttu spila eins mikið og þú vilt,“ segir Eyþór sem er hissa á hversu margir hafa reynt að komast á völlinn að næturlagi.

„Þetta var svo mikið um daginn að við vorum að velta því fyrir okkur að láta næturvörðinn hafa posa,“ segir hann og hlær en starfsmennirnir hafa húmor fyrir athæfinu. „Auðvitað á þetta ekkert að vera svona en okkur finnst þetta bara svo fyndið. Svo eru menn alltaf jafnhissa: „Ó kostar? Ha?“ Ég held að við bregðumst við næsta sumar, við erum að spá í að hafa opið allan sólarhringinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×