Lífið

Manuela hitti móður sína

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Manuela Ósk Harðardóttir deildi mynd á Instagram frá frumsýningu Fjalla-Eyvindar og Höllu á fimmtudagskvöld. 

Þar hitti Manuela leikkonuna Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur en árið 1988 fóru þær með hlutverk mæðgnanna Tótu og Höllu í sama leikriti sem þá var leikstýrt af Bríeti Héðinsdóttur.

Í nýju uppsetningunni er það leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir sem fer með hlutverk Höllu og Tóta litla er túlkuð af brúðu og tveimur ungum stúlkum sem stýra henni um sviðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×