Innlent

Mannréttindi að fá texta á íslenskt efni

BBI skrifar
Félagar í félagi heyrnarlausra. Mynd úr safni.
Félagar í félagi heyrnarlausra. Mynd úr safni. Mynd/Haraldur Guðjónsson
Félagsmenn Heyrnarhjálpar, félags heyrnarskertra, setja textun á íslensku sjónvarpsefni fram sem eitt helsta réttlætis- og baráttumálefni heyrnarskertra hér á landi. Heyrnarhjálp er 75 ára á þessu ári og í nýútkomnum afmælisbæklingi miða tvær greinar að þessu málefni. Þar er sagt að efling textunar verði eitt æðsta markmið afmælisársins.

„Það eru mannréttindi að fá að fylgjast með, því viljum við sjá texta á allt íslenskt sjónvarpsefni," segir í bæklingnum. Þar kemur fram að textinn sé heyrnarskertu fólki jafnmikilvægur og hljóðið er þeim sem heyra. Þar sem sjónvarpið á að gegna fræðslu- og upplýsingahlutverki sé textunin nauðsynleg til að opna heyrnarskertum aðgengi að útsendingunum.

Heyrnartæki. Textunin myndi gagnast öllum sem eiga við heyrnarskerðingu að stríða.
Eins og er textar Ríkisútvarpið nær allar útsendingar sem ekki eru beinar. Þannig geta allir nálgast texta á íslenska þætti og kvikmyndir á síðu 888 í textavarpinu. Heyrnarskertir vilja að þjónustan taki líka til frétta og viðtalsþátta upp að því marki sem slíkt er mögulegt. Samkvæmt upplýsingum frá RÚV hefur komið til skoðunar að texta fréttaútsendingar. Það hefur enn ekki verið gert enda kostnaðarsamt og tæknilega flókið.

Heyrnarskertir eru um 10 - 15% þjóðarinnar. Því má ætla að textunin myndi gagnast um 48 þúsund manns á landinu, sem hafi að sama skapi takmarkaðan aðgang að upplýsingum í sjónvarpsútsendingum eins og stendur. Í bæklingi Heyrnarhjálpar segir að það sé lögbundið hlutverk RÚV að reka sjónvarpsþjónustu fyrir alla landsmenn. Því hlutverki verði ekki náð fyrr en allt íslenskt efni verður textað. Þá er einnig talið eðlilegt að einkareknar stöðvar texti að minnsta kosti fréttir og fréttatengt efni.

„Heyrnarskertir þurfa aðgengi að fréttum og ýmsum upplýsingum, til jafns á við heyrandi. Þeir hafa líka áhuga á að fylgjast með þjóðfélagsumræðu," segir Ingólfur Már Magnússon, stjórnarmaður í Heyrnarhjálp.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×