Lífið

Mamma Beyoncé rýfur þögnina: "Allt er fullkomið“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Tina Knowles, móðir tónlistarkonunnar Beyoncé, rýfur þögnina varðandi sögusagnir um að dóttir sín sé að skilja við Jay Z í samtali við síðuna TMZ eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Beyoncé og Jay eru núna á tónleikaferðalaginu On the Run og segir sagan að þau muni skilja um leið og því lýkur í haust. Tina vísar þeim sögum á bug.

„Hatarar eiga eftir að hata og það er ekkert sem við getum gert í því. Allt er fullkomið. Ég les ekki einu sinni svona bull,“ segir Tina meðal annars.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×