Lífið

Maggi Mix gefur sparnaðarráð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Maggi með þáttarstjórnendum morgunþáttarins.
Maggi með þáttarstjórnendum morgunþáttarins. mynd/fm957
Tónlistarmaðurinn Maggi Mix mætti í morgunþátt FM957 í morgun og bauð hlustendum meðal annars uppá sparnaðarráð.

Mældi hann til dæmis með því að fólk sparaði hundrað krónur á dag sem gerði 36500 krónur á ári.

„Eftir eitt ár geturðu boðið 54 manns í bíó,“ segir Maggi eins og heyra má í meðfylgjandi hljóðbroti.

Þá talaði Maggi einnig um hreyfingu og er búinn að reikna það út að maður gangi átta hundruð kílómetra á ári, eða fram og til baka til Akureyrar, ef maður gengur tvo kílómetra á dag í eitt ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×