Innlent

Mætti taka fastar á barnaverndarmálum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Börn konunnar eru fimm, á aldrinum þriggja  til fimmtán ára.
Börn konunnar eru fimm, á aldrinum þriggja til fimmtán ára. vísir/vilhelm
Þyrí Steingrímsdóttir er réttindagæslumaður yngstu barna konu sem dæmd var í vikunni í átján mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn fimm börnum sínum. Hún segir barnaverndarmál ganga út á að reyna öll úrræði áður en farið sé í þvingunaraðgerðir, eins og að taka börn af foreldrum. Lögin geri ráð fyrir slíku meðalhófi og réttur til friðhelgi fjölskyldulífs sé mikill.

 

Sjá einnig: Átján mánaða fangelsi fyrir alvarleg og ítrekuð ofbeldisbrot gagnvart fimm börnum sínum



Þurý segir ekki almenna skoðun að barnaverndarmál séu of lengi að velkjast um í kerfinu, en mál konunnar hefur verið í vinnslu innan barnaverndar Reykjavíkur frá árinu 2005.

 

„En auðvitað má segja að það megi í mörgum tilfellum taka fastar á málum og ekki síst í þessu máli,“ segir Þurý en það var fyrst árið 2015 sem lögreglurannsókn hófst á málinu.  

 

„Það þarf talsvert mikið til, svo lögregla komi til skjalanna. Það er ljóst og hefur verið lengi. En ég tel að lögreglan hafi tekið vel á þessu máli,“ segir Þurý.

Sjá einnig: Börnin hafa það gott og eru hjá góðu fólki

Fræðimenn í lögfræði hafa bent á að sérfræðiþekking glatist reglulega eftir sveitastjórnarkosningar því þá sé nefndarmönnum í barnaverndarnefndum sveitarfélaga skipt út.

„Ég myndi hafa meiri áhyggjur af starfsmannaveltu í félagsþjónustunni. Þetta er gríðarlega erfitt starf og álagsmikið, of mörg mál á hverjum og einum og of lítil laun. Það ætti frekar að beina sjónum þangað, að félagsþjónustan þurfi meira fjármagn.“

 

Þurý er sem fyrr segir réttindagæslumaður tveggja yngstu barna konunnar. Hennar persónulega mat er að eftir á hyggja sé margt sem betur hefði mátt fara. Barnaverndarstofa hefur gefið út að rannsókn muni fara fram á málinu til að kanna hvort unnt hefði verið að taka öðruvísi á því.



„Það er athyglisvert hvað kemur út úr því,“ segir Þurý.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×