Lífið

Mad Men stjarna og einn sá heitasti úr The Bachelor nýjasta stjörnuparið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jones stórglæsileg á rauða dreglinum undir lok ársins 2017.
Jones stórglæsileg á rauða dreglinum undir lok ársins 2017.
Þættirnir The Bachelor njóta sífellt meiri vinsælda um heim allan og sérstaklega í Bandaríkjunum.

Nú á dögunum hófst 22. þáttaröðin en það var Nick Viall sem valdi Vanessa Grimaldi undir lok síðustu þáttaraðar.

Það samband var ekki langlíft og skildu leiðir fljótlega, eða í ágúst á síðasta ári. Nú greina fjölmiðlar vestanhafs frá því að nýjasta stjörnuparið sé einmitt Nick Viall og January Jones.

Jones lék eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum Mad Men á árunum 2007-2015.

Nick Viall er einn vinsælasti keppandinn í The Bachelor í sögu þáttanna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×