Lífið

Lupita og Leto kærustupar?

Guðrún Ansnes skrifar
Lupita og Leto yrðu einstaklega huggulegt par ef svo færi.
Lupita og Leto yrðu einstaklega huggulegt par ef svo færi. Nordicphotos/Getty
Sögusagnir um meint ástarsamband leikaranna Jarrets Leto og Lupitu Nyong'o fljúga fjöllunum hærra. Leto er sagður daðra af miklum móð við leikkonuna ungu, sem einna þekktust er fyrir Óskarsframmistöðu sína í Twelve Years a Slave.

Hún sagði nýverið skilið við kærasta sinn, rapparann K'naan, en hefur heldur betur jafnað sig ef marka má heimildarmenn.

Vinir Nyong'o segja hana eldheita fyrir Leto og hún sé meira en tilbúin að binda sig.

Gárungar segja hins vegar að Leto sé mikill daðrari í eðli sínu og harla ólíklegt að hann ætli sér nokkuð með Nyong'o.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×