Glamour

Lupita Nyong´o glæsileg á forsíðu Vogue

Ritstjórn skrifar
Stórglæsileg forsíða.
Stórglæsileg forsíða. Mynd/Vogue Skjáskot
Leikkonan Lupita Nyong´o prýðit forsíðu októberheftis bandaríska Vogue. Forsíðuþátturinn var skotinn af engum öðrum en Mario Testino, uppáhalds ljósmyndara Önnu Wintour. 

Lupita hlaut Óskarsverðlaunin árið 2014 fyrir hlutverk sitt í 12 Years a Slave og nær alltaf að slá í gegn á rauða dreglinum með flottum klæðaburði. Hún er með litríkan og öðruvísi stíl og er óhrædd við að taka ákveðnar áhættur í hári og förðun. 

Fleiri myndir úr forsíðuþættinum má sjá hér fyrir neðan en viðtalið við hana má lesa í heild sinni hér. 






×