Innlent

Loom-teygjur innkallaðar

Loom-teygjur. CE-merki vantar á tvær gerðir af teygjunum.
Loom-teygjur. CE-merki vantar á tvær gerðir af teygjunum.
Fríhöfnin hefur innkallað tvær gerðir af Loom-teygjum frá vörumerkinu Rainbow Loom, það er Solid Bands Olive Green og Solid Bands Mix. Vörurnar voru seldar á tímabilinu 9. september til 6. október 2014.

Ástæða innköllunarinnar er sú að CE-merkingar vantar á vörurnar, að því er segir á vef Neytendastofu.

CE-merkið er staðfesting á því að framleiðandinn hafi gengið úr skugga um að varan uppfylli og sé í samræmi við allar viðeigandi lagakröfur, svo sem um öryggi, heilsu og umhverfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×