Innlent

Loka þurfi um 75 prósent sjúkrarýma

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
"Ljóst er að verkfallið er þegar farið að hafa alvarleg áhrif á framvindu meðferðar margra sjúklinga sem þurfa að þola bið eftir svörum sem varða næstu skref í meðferð þeirra,“ segir Herdís.
"Ljóst er að verkfallið er þegar farið að hafa alvarleg áhrif á framvindu meðferðar margra sjúklinga sem þurfa að þola bið eftir svörum sem varða næstu skref í meðferð þeirra,“ segir Herdís. vísir/pjetur
Loka þarf um 75 prósent allra sjúkrarýma Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) komi til verkfalls hjúkrunarfræðinga. Sjúklingar í virkri meðferð verða áfram á sjúkrahúsunum en ekki verður möguleiki á að taka við nýjum sjúklingum nema í bráðatilfellum.

Bráðadeildir á Selfossi og í Vestmannaeyjum verða opnar og sótt verður um undanþágu til að veita göngudeildarþjónustu fyrir blóðskilunarsjúklinga á Selfossi og krabbameinssjúklinga í Vestmannaeyjum. Þjónusta í heimahjúkrun á Suðurlandi verður óbreytt að mestu. Þeir sem eiga bókaðan tíma á heilsugæslu eru því beðnir um að fylgjast með framvindu verkfallsins.



Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU.
Öryggi sjúklinga ógnað

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri HSU, lýsir yfir þungum áhyggjum í tilkynningu sem hún sendir frá sér í kvöld. Hún segir ástandið grafalvarlegt, óvissa ríki um raunverulegt ástand sjúklinga sem enn bíði eftir rannsóknum og hvaða áhrif töf á því að komast til meðferðar muni hafa í för með sér fyrir sjúklinga.

„Ljóst er að verkfallið er þegar farið að hafa alvarleg áhrif á framvindu meðferðar margra sjúklinga sem þurfa að þola bið eftir svörum sem varða næstu skref í meðferð þeirra,“ segir hún.

Herdís segir jafnframt að komi til verkfalls hjúkrunarfræðinga á morgun yrði það geysilega erfið viðbót við yfirstandandi verkföll lífeinda- og geislafræðinga og ljósmæðra. Áhætta gæti skapast fyrir sjúklinga ef töf verði á þjónustu og úrvinnslu undanþágubeiðna fyrir bráðveika sjúklinga. Því sé ljóst að allsherjarverkfall hjúkrunarfræðinga muni draga úr getu HSU til að sinna þörfum sjúklinga og meðhöndla einkenni. „Það mun skapa verulega ógn við öryggi sjúklinga,“ segir Herdís.

Á Selfossi verða opin 5 rúm af 18 sjúkrarúmum en áfram eru öll 40 hjúkrunarrými opin. Í Vestmannaeyjum verða um 4 rúm af 15 sjúkrarúmum opin, en þegar eru þar fyrir sjúklingar sem eru í biðplássi eftir hjúkrunarrými. Þar eru áfram opin 7 hjúkrunarrými.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×