Kona með lifrarbólgu C stakk lögreglumann á Akureyri með sprautunál Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 5. október 2016 10:34 Konan, sem talin er smituð af lifrarbólgu C, hefur margoft komið við sögu lögreglu. vísir/pjetur
Lögreglumaður á Akureyri var stunginn með sprautunál í miðbæ Akureyrar í síðasta mánuði. Ung kona í annarlegu ástandi er sögð hafa veist að manninum og slegið í hönd hans með nálinni, en grunur leikur á að konan konan sé smituð af lifrarbólgu C. Þetta staðfestir Gunnar Jóhannsson, lögreglufulltrúi á Akureyri, í samtali við Vísi. Hann segir að lögreglumaðurinn hafi fengið viðeigandi meðferð og að vel sé fylgst með líðan hans. Enn sé ekki vitað hvort hann hafi smitast af konunni. Konan hefur að sögn Gunnars oft komið við sögu lögreglu. Hún var handtekin eftir árásina en sleppt úr haldi degi síðar. Málið er komið á borð héraðssaksóknara, sem rannsakar mál af þessu tagi. Gunnar segir málið litið alvarlegum augum, en að þetta sé sá raunveruleiki sem blasi við lögreglumönnum landsins. „Þetta er sem betur fer mjög sjaldgæft en þetta er bara raunveruleikinn í dag og sýnir hve margt ber að varast og hvað það er áhættusamt að starfa í lögreglunni. Lögreglumenn geta alltaf átt von á svona,“ segir Gunnar. Heimildir Vísis herma að konan sé smituð af sjúkdómnum, en Gunnar vildi þó ekki staðfesta það. Hins vegar leiki grunur á því og að lögreglumaðurinn fái meðferð eftir því.
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Fleiri fréttir Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Sjá meira