Innlent

Lögreglumaður kærður fyrir kynferðisbrot

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins.
Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins. Vísir/Pjetur
Lögreglunni á Akureyri barst kæra síðastliðinn sunnudag frá tæplega tvítugri stúlku á hendur karlmanni á sextugsaldri fyrir kynferðisbrot. Brotið á að hafa átt sér stað á hóteli á Norðurlandi.

Gunnar Jóhannes Jóhannsson, rannsóknarlögreglumaður á Akureyri, segir rannsókn málsins miða vel.

„Það er búið yfirheyra stúlkuna sem kærði, hinn grunaða og nokkur vitni,“ segir Gunnar í samtali við Vísi.

DV greindi fyrst frá málinu en samkvæmt heimildum miðilsins er hinn ákærði lögreglumaður í einu af lögregluumdæmum Norðurlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×