Innlent

Lögreglan vill ekki að börn séu send heim úr skólanum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglan segir að borið hafi á símtölum frá foreldrum sem vilja leyfa börnunum sínum að fara heim úr skólanum.
Lögreglan segir að borið hafi á símtölum frá foreldrum sem vilja leyfa börnunum sínum að fara heim úr skólanum. Vísir/Stefán
Lögreglan mælir gegn því að foreldrar hringi í börnin sín og gefi þeim leyfi til að fara heim úr skólanum. Veður á enn eftir að versna. 

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að eitthvað hafi borið á þesskonar símtölum til grunnskólabarna í dag. Lögreglan segir að ekki væsi um börnin í skólanum og að best sé að þau verði þar.

„Þar til að veður fer að skána,“ segir lögreglan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×