Innlent

Lögreglan lýsir eftir bíl

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bifreiðin er af gerðinni Volkswagen Polo, árgerð 2013, grá að lit.
Bifreiðin er af gerðinni Volkswagen Polo, árgerð 2013, grá að lit. Mynd/lögreglan
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir bifreiðinni JBT01.

Tilkynnt var um stuld á bílnum hinn 18. apríl síðastliðinn, en hann hvarf frá heimili eiganda í Grindavík.

Bíllinn er tjónaður að framan.mynd/lögreglan
Bíllinn er af gerðinni Volkswagen Polo, árgerð 2013, grá að lit og er hann tjónaður á vinstra framhorni.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bifreiðina gæti verið að finna eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 444-2200 eða 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×