Innlent

Lögregla varar við miklum vatnselg

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglan segist hafa fengið senda þessa mynd af einum vatnselg sem sást á Suðurnesjum fyrr í dag.
Lögreglan segist hafa fengið senda þessa mynd af einum vatnselg sem sást á Suðurnesjum fyrr í dag. Mynd/Lögreglan á Suðurnesjum
Lögregluembættið á Suðurnesjum varar á Facebook-síðu sinni við að vatnselgur muni víða myndast á næstu dögum. Veðurstofan spáir hlýindum og megi því búast við að snjó leysi nokkuð hratt.

Lögreglan biður fólk um að gæta að niðurföllum og slíku og reyna að koma þannig í veg fyrir tjón af völdum vatns. „Talandi um vatnselg þá fengum við þessa mynd senda af einum slíkum sem sást á Suðurnesjum fyrr í dag,“ segir á Facebook-síðu embættisins, en starfsmenn þess virðast klárlega komnir í hátíðarskap.

Hið sama á reyndar við um starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem birtir einnig mynd af „vatnselg“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×