Innlent

Lögmannafélagið sendir Evu Joly tóninn

Eva Joly
Eva Joly
Lögmannafélagið sendi dómsmálaráðuneytinu ályktun vegna umræðu um rannsókn hins svokallaða bankahruns, en ályktunin er einnig send fjölmiðlum. Þar segir meðal annars að brýnt sé að vandlega verði rannsakað hvort lög hafi verið brotin í aðdraganda og eftirmálum bankahrunsins. Þá segir að Ísland sé og verði réttarríki. Í því felist að ríkisvaldið fari fram á grundvelli gildandi lagareglna, meðal annars þeirrar reglu að sakaðir menn séu saklausir uns sekt sé sönnuð. Þá segir að varhugavert sé að rannsakendur eða handhafar opinbers valds freisti þess að ná fram úrlausn um álitaefni af því tagi með málflutningi í fjölmiðlum.

Ályktun lögmannafélagsins má sjá í heild sinni hér að neðan en það er Lárentínus Kristjánsson formaður félagsins sem skrifar undir hana.

„Vegna umræðu um rannsókn hins svokallaða bankahruns hefur stjórn Lögmannafélags Íslands sent dómsmálaráðherra eftirfarandi ályktun:

Brýnt er að vandlega verði rannsakað hvort lög hafi verið brotin í aðdraganda og eftirmálum bankahrunsins. Eðli málsins samkvæmt hlýtur sú rannsókn að verða umfangsmikil og taka til þeirra sem rökstuddur grunur leikur á að hafi gerst sekir um refsiverða háttsemi.

Mikilvægi rannsóknarefnisins má hins vegar ekki verða til þess að gengið sé á svig við reglur sem um rannsókn gilda, eða að réttaröryggi verði fyrir borð borið. Ísland er og á að vera rétt­arríki. Í því felst að ríkisvaldið fari fram á grundvelli gildandi lagareglna, meðal annars þeirrar reglu að sakaðir menn séu saklausir uns sekt er sönnuð.

Augljóst er að bankahrunið olli gífurlegum skaða. Reiði vegna þeirra atburða má ekki verða til þess að slegið verði af kröfum sem gerðar eru til Íslands sem réttarríkis er virði grundvall­armannréttindi. Þá má heldur ekki slá af kröfum til opinberra rannsókna, þ.á.m. um hlutlægni rannsakenda og meðalhóf í beitingu opinbers valds.

Að gefnu tilefni má í þessu samhengi nefna álitaefni um hæfi einstakra embættismanna. Um hæfi gilda settar lagareglur sem ber að virða. Varhugavert er að rannsakendur eða handhafar opinbers valds freisti þess að ná fram úrlausn um álitaefni af því tagi með málflutningi í fjöl­miðlum.

Jafnframt má nefna trúnaðarsamband lögmanna við umbjóðendur sína. Allir eiga að geta treyst því að upplýsingar sem þeir veita lögmanni séu bundnar þagnarskyldu og komi ekki fyrir augu annarra aðila nema samkvæmt skýru lagaboði, að slíkar upplýsingar verði ekki not­aðar gegn þeim og að trúnaðarsamband lögmanna og umbjóðenda þeirra sé virt. Trúnaðarsam­bandið er ekki tæki til að hylja slóð ólögmætrar háttsemi, heldur grundvallarregla í vestrænum réttarríkjum.

Ástæða er til þess að árétta mikilvægi virðingar fyrir meginreglum réttarríkisins á þeim tímum sem fara í hönd. Erfiðleikar sem að þjóðinni steðja og reiði sem í henni býr, mega ekki verða til þess að einstaklingurinn njóti ekki lengur eðlilegs skjóls gagnvart ríkisvaldinu. Í því væri falin enn meiri vá en sú sem þjóðin tekst nú á við."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×