Innlent

Ljósleiðari milli Mosfellsbæjar og Grafarvogs slitnaði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ljósleiðarinn liggur milli Grafarvogs og Mosfellsbæjar.
Ljósleiðarinn liggur milli Grafarvogs og Mosfellsbæjar. Vísir/Vilhelm
Ljósleiðari milli Varmár í Mosfellsbæ og Grafarvogs slitnaði nú skömmu eftir hádegi. Greining á biluninni stendur nú yfir samkvæmt upplýsingum frá Mílu og mun viðgerð hefjast um leið og hún liggur fyrir.

Sigurrós Jónsdóttir, samskipta-og markaðsstjóri hjá Mílu, segir að varaleiðir séu til staðar á þessu svæði og því ætti ekki að vera mikið um það að internet liggi niðri á svæðinu.

Nú sé verið að vinna í því að komast að því hvar ljósleiðarinn slitnaði og hvers vegna svo hægt sé að gera við hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×