Lífið

Lítill kall á stórt svið

Baldvin Þormóðsson skrifar
Borgarleikhússtjóri segir Tiny Guy vera óhefðbundna sýningu.
Borgarleikhússtjóri segir Tiny Guy vera óhefðbundna sýningu. vísir/daníel
„Þetta er í raun fyrirlestur sem fjallar um hvernig við tökum ákvarðanir og mannsheilann í því samhengi,“ segir Friðgeir Einarsson, aðalleikari og leikstjóri sýningarinnar Tiny Guy.

„Við höldum að við höfum fulla stjórn á ákvörðunum okkar en svo virðist ekki vera.“

Ásamt Friðgeiri standa að sýningunni þeir Ragnar Ísleifur Bragason, Árni Vilhjálmsson, Jóhann Kristófer Stefánsson og einnig bregður fyrir stórleikaranum Aron MacPherson í óvæntu hlutverki.

„Fyrirlesturinn byggist á rannsóknum sem við höfum verið að gera á okkar eigin forsendum og höfum komist að ýmsu sem okkur þykir mikilvægt að komi fram í dagsljósið,“ segir Friðgeir en sýningin var fyrst sýnd í Háskóla Íslands á leiklistarhátíðinni Lókal.

„Síðan fluttum við sýninguna í Mengi á Óðinsgötu sem er skemmtilegur lítill staður,“ segir Friðgeir en þeir hafa ákveðið að breiða úr sér á stóra sviði Borgarleikhússins.

„Við þurfum ekki að breyta söguþræðinum en það er ýmislegt sem við þurfum að takast á við í tæknimálum og þurfum örugglega að stækka nokkur atriði til þess að búa til sömu upplifun á stóra sviðinu.“

Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, segir sýninguna vera skemmtilega og óhefðbundna. „Þetta er hugmynd sem spratt upp innanhúss að fá þessa sýningu inn,“ segir Kristín. „Það var akkúrat eitt laust kvöld, 26. apríl, á stóra sviðinu og við vorum sjálf búin að sjá sýninguna og hafa gaman af þannig að við gripum tækifærið.“

„Síðan er bara gaman fyrir Borgarleikhúsið að fara í samstarf við Friðgeir, hann er einn af okkar björtustu vonum í þessari óhefðbundnu leiklist,“ segir leikhússtjórinn.

Friðgeir segir að niðurstöður rannsóknanna sem kynntar verða í sýningunni séu mjög sláandi og að sýningin muni að öllum líkindum breyta lífi fólks.  „Þetta ætti ekki að vera neitt verri dagskrá en hjá Jordan Belfort í Hörpu. Nema bara miklu ódýrara.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×