LINdælis Öskubuskuævintýri

Fréttablaðið Tíska og hönnun 18. febrúar 2012 11:00
Kobe Bryant og félagar í LA Lakers reyna af veikum mætti að stöðva Jeremy Lin í leik liðanna á föstudaginn fyrir viku, þar sem bakvörðurinn fór á kostum, skoraði 38 stig og gaf sjö stoðsendingar.
Kobe Bryant og félagar í LA Lakers reyna af veikum mætti að stöðva Jeremy Lin í leik liðanna á föstudaginn fyrir viku, þar sem bakvörðurinn fór á kostum, skoraði 38 stig og gaf sjö stoðsendingar. nordicphotos/getty
Um fátt er meira rætt í íþróttaheiminum þessa dagana en ótrúlegan uppgang Jeremy Lin, leikmanns New York Knicks í NBA, sem var öllum ókunnur fyrir tveimur vikum. Kjartan Guðmundsson leit yfir sögu bakvarðarins sem heillað hefur heimsbyggðina.

LINsanity, LINderella, Super-LINtendo, The Towering LINferno, Mr. LINcredible, All-LIN. Listinn yfir hnyttnar samsetningar sem notaðar hafa verið til að lýsa Jeremy Lin, leikmanni New York Knicks í NBA-körfuknattleiksdeildinni bandarísku, er nánast óendanlegur. Að æði skapist í kringum tiltekna leikmenn í íþróttinni eru engin nýmæli en hamagangurinn í kringum Lin er sérstakur á margan hátt. Fyrir einungis tveimur vikum var hann flestum ókunnur en er nú forsíðuefni víðast hvar á byggðu bóli. Ástæðan er fyrst og fremst hreint ótrúleg spilamennska í fyrstu leikjum hans sem byrjunarliðsmaður í NBA, en það er ótal margt fleira í fari og sögu Jeremy Lin sem hefur heillað heimsbyggðina.


Hógvær hagfræðingur
Fyrir það fyrsta er Lin Bandaríkjamaður af taívönskum uppruna (foreldrar hans fluttu til Bandaríkjanna frá Taívan á áttunda áratugnum), sá fyrsti til að spila í NBA-deildinni, og höfðar þannig mjög til risavaxins hóps sem kann vel að meta nýbreytnina. Sem dæmi um takmarkaðar vinsældir körfuknattleiks í asískum samfélögum, að minnsta kosti lengi framan af, var Lin stöðvaður af miðasölumanni þegar hann sótti fyrsta körfuboltaleikinn sinn í San Francisco, nærri heimaborginni Palo Alto í Kaliforníufylki, og sagt að hann væri líklega að ruglast. Það kvöldið væri ekkert blak á dagskrá heldur bara körfubolti. Aðeins fjórir bandarískir leikmenn af asísku bergi brotnir hafa leikið í þessari vinsælu deild og slíkir brautryðjendur hafa alltaf ákveðinn sjarma, svo ekki sé minnst á þegar menn ryðjast fram á sjónarsviðið með slíkum bægslagangi.
Sjálfur þykir Lin þó með hógværari mönnum, eins og margsinnis hefur sýnt sig á blaðamannafundum síðustu tvær vikurnar. Hann víkur sér fimlega undan tíðum spurningum um sjálfan sig og frammistöðu sína og kýs heldur að beina athyglinni að liðsheildinni og hæfileikum þjálfarans Mike D‘Antoni. Raunar segist Lin lítil umráð hafa yfir því hvert ferill hans stefnir: slíkt sé í höndum sjálfs guðs almáttugs. Slíkir skapgerðareiginleikar hljóta að hafa verið Lin ómetanlegir þegar hvorki gekk né rak í boltanum í upphafi NBA-ferilsins, sé miðað við sýnilega hæfileika og metnað leikmannsins.
Þá er ótalin sú staðreynd að Lin er útskrifaður hagfræðingur frá Harvard, skóla sem hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir allt annað en afrek á íþróttasviðinu. Harvard hefur reyndar getið af sér tvöfalt fleiri Bandaríkjaforseta (átta) en NBA-leikmenn (fjóra), sem gerir uppgang þessa 23 ára leikmanns enn merkilegri. Í íþróttafræðunum er talað um olnbogabörn, ólíklega lítilmagna, og Lin passar eins og flís við rass við lýsinguna.


Milli skips og bryggju
Ástæða þess að enginn kveikti fyrir alvöru á möguleikunum sem búa í Jeremy Lin fyrr en fyrir tveimur vikum er af mörgum talin ofannefnd staðreynd: dvöl hans í einum af fremstu háskólum Bandaríkjanna. Í skotheldu skoðunarkerfi þar sem litið er á nánast alla efnilega leikmenn, hvar sem er í heiminum, er í raun ótrúlegt að Lin hafi fallið milli skips og bryggju í sjálfum Bandaríkjunum. Aðrir hafa velt upp þeim möguleika að staðalímyndin sem gerir sjálfkrafa ráð fyrir að Asíumenn sér lélegir körfuboltamenn hafi haft sitt að segja.
Í öllu falli dugði góð frammistaða Lin með háskólaliði Harvard honum skammt þegar kom að nýliðavalinu árið 2010, en þar vildi ekkert NBA-lið velja Lin. Óvalinn komst hann þó að hjá liðinu sem hann studdi sem ungur drengur, Golden State Warriors, fékk lítið að spila þrátt fyrir góðan stuðning frá áhorfendum af asískum uppruna, og var að lokum látinn fara í byrjun desember síðastliðins. Við tók örstutt dvöl hjá Houston Rockets áður en New York Knicks tók við honum rétt eftir jól, en þar var Lin hugsaður sem fjórði valkostur í bakvarðarstöðuna.


Ballið byrjar gegn Nets
Um miðjan janúar lét Knicks Lin spila einn leik í varadeildinni (D-League), þar sem hann lék vel og var kallaður aftur í aðalliðið. Þó voru forráðamenn liðsins komnir á fremsta hlunn með að losa sig við bakvörðinn, en vegna slakrar spilamennsku og meiðsla annarra leikmanna fékk Lin tækifæri og kom inn á af bekknum í leik gegn New Jersey Nets þann 4. febrúar. Í þeim leik byrjaði ballið og Lin fór á kostum, skoraði 25 stig og gaf sjö stoðsendingar í 99-92 sigri Knicks.
Tveimur dögum síðar lék Lin sinn fyrsta leik í byrjunarliði í NBA gegn Utah Jazz, skoraði 28 stig og gaf átta stoðsendingar og áhorfendur ætluðu vart að trúa því sem þeir sáu. Dagarnir síðan hafa verið samfelld sigurganga fyrir Lin og Knicks, sem hafði unnið sjö leiki í röð fram að viðureigninni við New Orleans Hornets í nótt og kveikt elda í hjörtum aðdáenda liðsins á ný eftir ansi mörg mögur vonbrigðaár. Þetta hefur reynst mögulegt þrátt fyrir að helstu stjörnur liðsins hingað til, Carmelo Anthony og Amar‘e Stoudemire hafi ekki leikið með liðinu framan af. Meðal hápunkta á þessari ótrúlegu sigurgöngu eru glæsilegur sigur gegn Los Angeles Lakers, þar sem Lin skoraði 38 stig, fjórum fleiri en stórstjarnan Kobe Bryant, og þriggja stiga sigurkarfa á síðustu sekúndu leiks gegn Minnesota Timberwolves.
Lin er fyrsti NBA-leikmaðurinn sem skorar yfir tuttugu stig og gefur í minnsta lagi sjö stoðsendingar í fyrstu fjórum leikjum sínum sem byrjunarliðsmaður. Frá árinu 1985 höfðu aðeins fjórtán leikmenn náð að minnsta kosti tuttugu stigum, sjö stoðsendingum og stolnum bolta í sex leikjum í röð. Jeremy Lin hefur nú bæst í þennan hóp, sem telur meðal annarra þá Magic Johnson, Michael Jordan, LeBron James og Chris Paul. Lin fetar því ekki í fótspor neinna smámenna þessa dagana. Fregnir herma að hann hafi nú fest kaup á íbúð í stóra eplinu, en fyrir tveimur vikum var hann svo óviss um framtíð sína að hann gisti á sófanum hjá bróður sínum.


Heppni eða ekki?
Slíkum Öskubuskusögum fylgja óhjákvæmilega efasemdir ýmissa. Buzz Bissinger hjá veftímaritinu The Daily Beast segir eina helstu ástæðu Lin-æðisins þá að hann sé leikmaður Knicks, „þess ömurlega liðs sem mistekst allt sem það reynir. Hvaða óþekkti leikmaður sem er, sem á nokkra góða leiki í röð og virðist virkilega njóta þess að spila körfubolta, verður ýktur og auglýstur fram yfir öll skynsemismörk,“ segir Bissinger og bætir við að slíkt æði hefði aldrei orðið ef um væri að ræða svartan leikmann en ekki af asísku bergi brotinn.
Tölfræðingurinn og rithöfundurinn Nate Silver bendir á hinn bóginn á að árangur Lin geti hreinlega ekki verið tilviljun. „Körfubolti byggir mun minna á heppni en til dæmis hafnabolti, sérstaklega hjá bakverði sem er svo mikið með boltann í hverjum leik. Miðlungs bakvörður gæti hugsanlega náð einni slíkri leikjaröð á ferlinum, en mun líklegra er að hún beri vitni um gæði stjörnuleikmanns.“
Í öllu falli er ljóst að Jeremy Lin hefur vakið meiri athygli en flestir aðrir leikmenn síðustu ár og jafnvel áratugi í íþróttaheiminum.

Fleiri fréttir - Tíska og hönnun

Tíska og hönnun 24. maí. 2012 09:30

Bláa Lónið bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar Íslands

Bláa Lónið og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning og er Bláa Lónið ...  

Meira
Tíska og hönnun 24. maí. 2012 10:30

Ljótufatakeppni á Billboard

Billboard verðlaunahátíðin fór fram í Las Vegas um helgina og stjörnurnar flykktust til ey...  

Meira
Tíska og hönnun 23. maí. 2012 11:00

Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Kára

Fatahönnuðurinn Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Káradóttur en hún gengur að e...  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 17:00

Óvenjuleg dress

Hvort sem það er Jean Paul Gaultier, Commes des Garçon, Jeremy Scott, Issey Miyake eða Thi...  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 13:30

Scarlett í Dolce&Gabbana

Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, var mynduð við tökur......  

Meira
Tíska og hönnun 22. maí. 2012 09:49

Undirfataverslun opnar í Kringlunni

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar ný undirfataverslun, Boux Avenue, opnaði í Kringlunn...  

Meira
Tíska og hönnun 21. maí. 2012 18:00

Diane Kruger skein skært á rauða dreglinum

Leikkonan Diane Kruger skein skært á rauða dreglinum á frönsku kvikmyndahátíðinni í Cannes...  

Meira
Tíska og hönnun 21. maí. 2012 10:45

Fallegustu kjólar vikunnar

Fallegustu kjólar vikunnar ef ekki ársins hafa verið valdir af pressunni vestanhafs....  

Meira
Tíska og hönnun 18. maí. 2012 11:45

Veldu réttu sólgleraugun fyrir sumarið

Það er sá tími ársins sem fólk dregur upp sólgleraugun á ný....  

Meira
Tíska og hönnun 16. maí. 2012 13:00

Chanel kynnti nýjungar í Frakklandi

Chanel kynnti undurfagrar nýjungar fyrir næstkomandi haust í Versailles í Frakklandi í gær...  

Meira
Tíska og hönnun 16. maí. 2012 15:00

Hannar tæknileg föt

Fatahönnuðurinn Nicola Formichetti hyggst hanna fatalínu undir eigin nafni. Formichetti va...  

Meira
Tíska og hönnun 15. maí. 2012 17:30

Munstraðir kjólar vinsælir

Leikkonurnar Christina Hendricks, 37 ára, og Sofia Vergara, 39 ára, eru hrifnar af síðum m...  

Meira
Tíska og hönnun 14. maí. 2012 20:43

Stella McCartney leitar jafnvægis

Breski hönnuðurinn Stella McCartney segir hönnun sína ganga út á jafnvægi í ár....  

Meira
Tíska og hönnun 14. maí. 2012 16:00

Stærra og grófara skart með haustinu

Þrátt fyrir að sumarið sé rétt að hefjast birtast nú tískustraumar næsta hausts og vetrar ...  

Meira
Tíska og hönnun 12. maí. 2012 13:00

Ber virðingu fyrir gömlu og góðu

"Við berum mikla virðingu fyrir þjóðbúningnum en við viljum reyna að nútímavæða hann og ge...  

Meira
Tíska og hönnun 11. maí. 2012 10:32

Manolo Blahnik frumsýnir nýja skólínu

Stórstjarna skóiðnaðarins, sjálfur Manolo Blahnik frumsýndi nýja skólínu í tískuborginni M...  

Meira
Tíska og hönnun 11. maí. 2012 18:15

Englar Victoriu Secret sýna nýja undirfatalínu

Fyrirsæturnar Lindsay Ellingson, Doutzen Kroes, og Erin Heatherton stilltu sér upp fyrir u...  

Meira
Tíska og hönnun 10. maí. 2012 11:30

Best og verst klæddu á Met-ballinu

Rauða dreglinum var rúllað út í New York í vikunni er hið árlega galakvöld Metropolitan-sa...  

Meira
Tíska og hönnun 10. maí. 2012 08:07

Funheit lína Fendi

Ef myndirnar eru skoðaðar af haustlínu tískuhússins Fendi má sjá yfirhönnuðinn Karl Lagerf...  

Meira
Tíska og hönnun 08. maí. 2012 12:30

Heidi Klum glæsileg í blárri blúndu

Ofurfyrirsætan Heidi Klum var ein þeirra sem bar af á galakvöldi Metropolitan safnsins í N...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 17:30

Stjörnustílistinn Rachel Zoe í SoHo

Stjörnustílistinn Rachel Zoe og eiginmaður hennar Rodger Berman voru á ferðinni í New York...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 10:30

Kjólar vikunnar

Stjörnurnar komu víða saman í Hollywood í síðustu viku og að vanda fer pressan yfir þær be...  

Meira
Tíska og hönnun 07. maí. 2012 08:00

Johnson gjaldþrota

Fyrirtæki fatahönnuðarins Betsey Johnson hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum samkvæmt frét...  

Meira
Tíska og hönnun 06. maí. 2012 14:42

Mynduð fyrir Acne

Enn berast fregnir af sigrum fyrirsætunnar Kolfinnu Kristófersdóttur sem er komin á fullt ...  

Meira
Tíska og hönnun 04. maí. 2012 20:00

Þurfti að bíða í hálft ár með að segja frá sigrinum

Birta Ísólfsdóttir, fatahönnuður, bar sigur úr býtum í hönnunarkeppninni Hannað fyrir Ísla...  

Meira
Tíska og hönnun 04. maí. 2012 07:00

Anna Dello Russo hannar fyrir H&M

Ritstjórinn og tískufyrirmyndin Anna Dello Russo er að fara í samstarf við sænsku verslana...  

Meira
Tíska og hönnun 03. maí. 2012 15:30

Dreymdi Lagerfeld

Sjónvarpskonan Alexa Chung vaknaði í gærmorgun eftir undarlegan draum og ákvað að deila in...  

Meira
Tíska og hönnun 03. maí. 2012 12:30

Kristen Stewart valin best klædda kona Bretlands

Tímaritið Glamour Magazine hefur kosið best klæddu konu Bretlands en það er Twilight-stjar...  

Meira
Tíska og hönnun 29. apr. 2012 15:00

Rósótt þema í tískupartýi

Tribeca-kvikmyndahátíðin stendur þessa dagana yfir í New York en margmenni er statt í borg...  

Meira
Tíska og hönnun 29. apr. 2012 11:00

Myndar allt fyrir danska hönnuðinn Henrik Vibskov

"Þetta er mjög gaman og ég er umvafinn jákvæðu og listrænu fólki hérna,“ segir ljósm...  

Meira
Tíska og hönnun 27. apr. 2012 16:45

Fyrstu nemendur Elite Fashion Academy útskrifast

Meðfylgjandi myndir og myndskeið ......  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 15:13

Hver mun hanna brúðarkjól Angelinu Jolie?

Eins og þekkt er orðið ætla þau Brad Pitt og Angelina Jolie að ganga í það heilaga á næstu...  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 14:00

Settu punktinn yfir I-ið með litríkri tösku

Litagleðin ætlar engan endi að taka um þessar mundir í fatnaði, skóm, töskum og skarti....  

Meira
Tíska og hönnun 26. apr. 2012 08:00

Vandað vel til verka

Útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands var haldin á sumardaginn fyrsta ...  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 20:36

Litagleðin allsráðandi

Meðfylgjandi má sjá haustlínu Matthew Williamson í ár......  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 14:00

Jean Paul Gaultier hannar fyrir Diet Coke

Listamaðurinn Carolyn Roper málaði tvær breskar fyrirsætur sem sátu fyrir í glugga verslun...  

Meira
Tíska og hönnun 25. apr. 2012 13:00

Neon litaðir skór heitir í sumar

Það er óhætt að segja að Neon litir séu sjóðandi heitir um þessar mundir....  

Meira
Tíska og hönnun 24. apr. 2012 13:00

Flottar í flatbotna skóm

Sumarið er komið og stjörnurnar eru farnar á ströndina í léttum klæðum og flatbotna skóm....  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 16:28

Undursamlegt útsýni úr lúxusíbúð

Meðfylgjandi myndir voru teknar í þakíbúð á 31. hæð í háhýsi sem er staðsett á kletti í Ne...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 14:15

Naglalakk í öllum regnbogans litum

Naglalökk hafa verið mikið í tísku síðustu misseri eins og sést hefur hjá Hollywood stjörn...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 11:00

Fjallað um Kríu í NY Times

Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, sendi nýverið frá sér nýja línu sem unnin e...  

Meira
Tíska og hönnun 23. apr. 2012 11:00

Fer til New York í sumar

Gyða Katrín Guðnadóttir sigraði Eskimo/Next fyrirsætukeppnina sem haldin var í Hörpu á mið...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 15:00

Handverk í formi málverks

Helga Sigríður Valdemarsdóttir myndlistakona á Akureyri notar útsaumsmunstur kvenna í málv...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 13:00

Stubbur á kodda

Ragnhildur Anna Jónsdóttir vinnur barnaföt undir merkinu Jónsdóttir & co. Nýjasta varan er...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 11:00

Íslenska pönnukökupannan fær andlitslyftingu

Íslenska pönnukökupannan hefur fengið andlitslyftingu í meðförum fimm íslenskra hönnuða og...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 08:00

Ástríða fyrir skarti og þjóðbúningum

Hjónin Guðrún Hildur Rosenkjær og Ásmundur Kristjánsson hafa sérhæft sig í gerð þjóðbúning...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 14:21

Haustlína Gucci einkennist af sjálfstrausti

Frida Giannini hönnuður Gucci lét hafa eftir sér að orðið rómantík hafi verið notað baksvi...  

Meira
Tíska og hönnun 22. apr. 2012 13:00

Next-stúlkan valin í Hörpunni

Eskimo/Next-fyrirsætukeppnin fór fram í Hörpu á síðasta degi vetrar. Tíu stúlkur tóku þátt...  

Meira
Tíska og hönnun 21. apr. 2012 16:00

Í eina sæng með Mac

Snyrtivöruframleiðandinn Mac mun senda frá sér nýja línu í haust sem unnin er í samstarfi ...  

Meira
Tíska og hönnun 16. apr. 2012 13:45

Dýramynstur heitt í Hollywood

Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni er dýramynstur heitt í Hollywood......  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Tíska og hönnun / LINdælis Öskubuskuævintýri