Fótbolti

Líklega komið að leiðarlokum hjá Arshavin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arshavin á góðum degi.
Arshavin á góðum degi. vísir/getty
Hinn 34 ára gamli Rússi, Andrei Arshavin, íhugar nú alvarlega að leggja skóna á hilluna. Hann er án félags þessa dagana.

Hann samdi við Kuban Krasnodar í júlí en náði ekki að spila einn leik fyrir félagið áður en samningnum var rift. Hann íhugar því að hætta.

„Ef ég fæ eitthvað tilboð þá mun ég líklega skoða það. Ef ekki þá er ég bara hættur,“ sagði Arshavin.

Hann lék 153 leiki fyrir Arsenal þau fimm ár sem hann var hjá félaginu. Hann fór á kostum með Zenit áður en hann fór til Arsenal og fór svo aftur til Zenit er tímanum hjá Arsenal lauk.

Ferill hans hjá Arsenal fékk flugstart er hann skoraði fjögur mörk gegn Liverpool. Hann náði aldrei almennilega að fylgja þeirri byrjun eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×