Innlent

Leysigeisla beint að lögreglubíl

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvuðu bifreið við hefðbundið umferðareftirlit eftir að þeir höfðu séð að grænum leysigeisla var beint í allar áttir frá bílnum. Þar á meðal að lögreglubifreiðinni.

„Bifreiðin var stöðvuð en fjórir menn sem í henni voru könnuðust ekki við að hafa verið við þessa hættulegu iðju,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Lögreglumennirnir fundu þó leysibendinn á gólfi bílsins.

Lögregla ítrekar að athæfi af þessum tagi getur skapað mikla hættu, eins og dæmi eru um, sé leysigeislum beint að farartækjum í lofti eða á láði.









Fleiri fréttir

Sjá meira


×