Innlent

Leysa mengandi vinnsluaðferð af hólmi á Katanesi

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar
Fyrirtækið hefur framleitt sólarkísil með þessari aðferð í rúm tvö ár í tilraunverksmiðju sinni í Kanada þar sem þessi mynd er tekinn.
Fyrirtækið hefur framleitt sólarkísil með þessari aðferð í rúm tvö ár í tilraunverksmiðju sinni í Kanada þar sem þessi mynd er tekinn. mynd/silicor materials
Silicor Materials sem áformað er að reisa á Katanesi á Grundartanga í Hvalfirði verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Þar verður framleiddur sólarkísill sem notaður er í sólarsellur sem vinna orku úr sólarljósi.

Guðjón Jónsson, efnaverkfræðingur hjá verkfræðistofunni VSÓ, segir að hingað til hafi slíkur kísill verið unninn eftir svokölluðu Siemens-vinnsluferli sem er flókið, orkufrekt og mengandi. „Þetta nýja vinnsluferli er hins vegar einfalt, mun hagkvæmara og mengar nær ekkert. Ég er búinn að vera í efnaverkfræðinni í 30 ár og það er sjaldan sem maður sér hnökrana leysta svo snilldarlega eins og þarna.“

Um er að ræða hreinsunaraðferð þar sem kísill, sem ekki er nógu tær til að vera notaður sem sólarkísill, er hreinsaður. Það er gert með því að leysa hann upp í fljótandi áli. Að sögn Guðjóns hefur Silicor Materials framleitt slíkan sólarkísil með þessum hætti í rúm tvö ár í tilraunaverksmiðju sinni í Kanada og gaf það svo góða raun að nú skal hafist handa af fullum krafti.

Guðjón Jónsson
Guðjón segist vonast til að þessi nýja uppfinning verði til þess að bæta stöðu sólarorkunnar í samkeppninni við aðra orkugjafa.

Að sögn Davíðs Stefánssonar, sem hefur verið fyrirtækinu innan handar með ráðgjöf hér á landi, er fyrirhuguð framleiðslugeta fyrirtækisins um 19.000 tonn en áætlað er að heimsframleiðsla, það er að segja allra framleiðenda í geiranum, verði um 500.000 tonn eftir fjögur ár. Það er einmitt þá sem verksmiðjan á að vera komin í full afköst en framkvæmdir við hana hefjast nú í haust. 

Nýja verksmiðjan mun væntanlega skapa fjögur hundruð störf en það eru rétt um 200 færri en íbúar Hvalfjarðarsveitar þar sem nú þegar eru tvö stóriðjuver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×