Tónlist

Leoncie með lífverði í Vestmannaeyjum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
„Við erum búnir að uppfylla allar hennar helstu kröfur. Hún fer til dæmis ekki með Herjólfi heldur flýgur hún og verður sótt á glæsilegum jeppa. Við erum líka með tvo lífverði sem verða með henni meðan á dvöl hennar stendur,“ segir Birgir. Nielsen, vert á tónleikastaðnum Háaloftinu þar sem Leoncie kemur fram í Vestmannaeyjum á morgun. 

Birgir segir hina þaulreyndu söngkonu vera með kröfur þegar kemur að tónleikahaldi.

„Hún mun gista á fjögurra stjörnu hóteli og þeir hjá Einsa kalda verða klárir með steikina þegar hún mætir,“ bætir hann við.

Leoncie sjálf er full tilhlökkunar: „Þetta er að mig minnir í fyrsta sinn sem ég kem fram á tónleikum í Vestmannaeyjum. Þetta verður geggjað, ég ætla halda frábært sjó og hlakka mikið til,“ segir tónlistarkonan Leoncie.

Hún átti fullt í fangi með að velja sér kjóla til þess að fara með til Eyja þegar blaðamaður náði tali af henni.

Birgir segir mikla tilhlökkun vera í Eyjamönnum fyrir komu tónlistarkonunnar. 



Birgir Nielsen ætlar að hugsa vel um Leoncie á meðan hún dvelur í Eyjum.Vísir/Vilhelm
Eyjaferðin er þó eingöngu upphafið að ævintýrum Leoncie á nýju ári því hún er á leið til Bandaríkjanna í tónleikaferð í fyrsta sinn. 

„Ég fer út eftir um það bil tvo mánuði og kem fram á fimm tónleikum. Upphaflega átti ég að koma fram á tíu tónleikum en ég vildi frekar taka færri tónleika og halda frábært sjó en að taka fleiri og leggja minna í þá,“ segir Leoncie. Hún kemur fram í New York, Las Vegas, Fíladelfíu, Boston og Washington. 

„Ég er líka að fara taka upp tónlist í Bandaríkjunum fyrir mína næstu plötu.“ Bandarískur gítarleikari mun aðstoða hana í upptökunum á nýju plötunni.Hún útilokar ekki að frumflytja Eurovision-lagið sitt, sem hún sendi án árangurs inn í undankeppni Eurovision, á tónleikunum í Eyjum. 

„Ég ætla svo að taka upp myndband í Bandaríkjunum við lagið.“ Leoncie vill þó ekki tjá sig um titil lagsins að svo stöddu. 

Hún stígur á svið á Háaloftinu um klukkan 22.30 annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×