Lífið

Lena með Obama í læri

Dunham hefur getið sér gott orð í bransanum, enda hárbeitt og stórsniðug.
Dunham hefur getið sér gott orð í bransanum, enda hárbeitt og stórsniðug.
Girls-skvísan Lena Dunham er heldur betur komin í ábyrgðarfulla stöðu ef marka má slúðurblöðin vestanhafs.

Er því haldið farm að Dunham sé nú orðin yfirmaður Malia Obama, sem er dóttir sjálfs Bandaríkjaforseta.

Malia á vappinu.
Sást Malia á setti við tökur þáttanna á dögunum og nýlega sagði hún frá því á samfélagsmiðlum að hún væri mikill aðdáandi þáttanna. Þá var einnig haft eftir henni að hún gæti vel hugsað sér að sjá sér farborða með því að vinna í kvikmyndabransanum.

Virðist sem því hafi verið kippt í liðinn og nú er hún að öllum líkindum farin að starfa með aðalfólkinu í bransanum. Hún mun þó ekki væntanleg á skjáinn, heldur liggur áhugasvið forsetadótturinnar í að vinna á bakvið tjöldin í framleiðsluferlinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×