Lífið

Leið eins og fitubollu í verslun Victoriu Beckham

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Ég hef þráð kjól eftir Victoriu Beckham alveg síðan hún byrjaði að hanna föt,“ skrifar Claire Cisotti í pistli á vefsíðunni Daily Mail. Tilefni pistilsins er heimsókn Claire í nýja verslun Victoriu í London sem opnaði á dögunum í þeirri von að finna draumakjólinn.

Claire var með þeim fyrstu að heimsækja verslunina og þó að verðið á flestum flíkunum væri himinhátt ákvað Claire að máta kjól sem henni fannst fullkominn fyrir sig. Hann kostaði rúmlega sextán hundruð pund, rúmlega þrjú hundruð þúsund krónur.

„Ég er í stærð 14, en í sumum verslunum kemst ég upp með að klæðast stærð 12 að neðan,“ skrifar Claire. Starfsmaður verslunarinnar vísaði henni í búningsklefann og rétti henni þrjá mismunandi kjóla í stærð 14.

Claire fékk áfall inni í búningsklefanum.

„Ég var orðlaus er ég horfði á sjálfa mig í speglinum í búningsklefanum. Ég var nýbúin að smokra mér í draumakjólinn. En spegilmynd mín líktist frekar Michelin-manninum,“ segir Claire.

„Eftir tvö börn bjóst ég við smá mömmumaga. En ég leit út fyrir að vera komin að minnsta kosti þrjá mánuði á leið í þessum kjól. Litlir fitupokar héngu fyrir neðan sitthvorn handakrikann og barmur minn, sem mér finnst vera minn besti kostur, virtist hafa breyst í harðan kjötpúða. Ég var ekki aðeins niðurlægð, ég var mjög vonsvikin,“ bætir hún við.

Þegar ljóst var að Claire passaði ekki í kjólana í stærð 14 spurði hún starfsmanninn vinsamlega hvort stærð 16 væri í boði. Þá svaraði starfsmaðurinn:

„Við erum að vinna í því.“

Pistil Claire í heild sinni má lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×