Tónlist

Ledfoot spilar á tónleikum í kvöld: Skapaði sína eigin tegund tónlistar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá Ledfoot. Hann heldur tónleika á Gamla Gauknum í kvöld.
Hér má sjá Ledfoot. Hann heldur tónleika á Gamla Gauknum í kvöld. Mynd/Janette Beckman
Hinn bandaríski Tim Scott McConnell, betur þekktur sem Ledfoot, er staddur hér á landinu í þeim tilgangi að halda tónleika. Þetta er í þriðja sinn sem þessi færi tónlistarmaður leikur hér á landi, síðast lék hann á Secret Solstice.

Ledfoot hefur verið lengi í bransanum, er þaulreyndur tónlistarmaður. Hann er alinn upp víða Bandaríkin. „Við þurftum að flytja mikið þegar ég var yngri. Ég held að ég hafi farið í um 25 grunnskóla og búið í alltof mörgum fylkjum. Ég á eiginlega engan stað í Bandaríkjunum sem ég kalla „heima“, nema kannski Tampa í Flórída, þar sem amma mín og afi bjuggu.“ 

Ledfoot hefur verið í tónlistarbransanum í áraraðir.
Hann byrjaði á því að læra á banjó og notar tæknina þaðan til þess að bæta gítarleik sinn. Hann leikur á sérsmíðaða gítara, tólfstrengja með sérstökum strengjum. 

Hér má sjá umfjöllun um Ledfoot í Rolling Stone.

„Ég hef verið í þessum bransa lengi og einsetti mér það að skapa mína eigin tónlistartegund,“ útskýrir Ledfoot. Tónlistin sem hann leikur er kölluð Gothic Blues. Tónlist hans er magnþrungin og stundum svolítið ögrandi, kannski í stíl við hann sjálfan. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem ljósmyndarinn Janette Beckman tók er Ledfoot frekar óhefðbundinn í útlit. Hann gerir sér grein fyrir þessu. „Þegar ég fer með börnin mín á leikskólann eða skólann er ég stundum með svart naglalakk og málningu framan í mér, frá kvöldinu áður. En fólkið þar þekkir mig og veit að þetta er bara svipað og ef verkamaður mætti með hjálminn sinn,“ segir hann og hlær. 

Sjá einnig: Vinsælastur í Bandaríkjunum án þess að hafa hugmynd um það

Ledfoot er búsettur í Noregi og á fjögur börn. „Það er kalt í Noregi, en annars er lífið gott. Ég bý þar fyrir börnin mín,“ útskýrir hann.

Ítarlegra viðtal við hann birtist í Fréttablaðinu í vikunni. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 21.00 og fara fram á Gamla Gauknum. Hægt er að fá miða á Midi.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×