Fótbolti

LeBron James sendi Ronaldinho átta milljón króna úr

Ronaldinho með úrið.
Ronaldinho með úrið. mynd/instagram
Brasilíumaðurinn Ronaldinho birti mynd á Instagram þar sem hann þakkar körfuboltakappanum LeBron James fyrir gjöf sem hann fékk frá honum.

Um er að ræða 8 milljón króna úr sem LeBron hannaði sjálfur. Úrið hefur verið vinsælt hjá leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég elska þessa gjöf. Úr í takmörkuðu magni frá bróður mínum LeBron James. Bestu þakkir vinur minn," skrifaði Ronaldinho við myndina.

Aðeins voru framleidd 600 svona úr og verðið á þeim sem fara í endursölu gæti vel farið yfir 10 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×