Fótbolti

Lazio engin fyrirstaða fyrir Juventus

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mandzukic fagnar marki Dybala með markaskoraranum.
Mandzukic fagnar marki Dybala með markaskoraranum. vísir/getty
Juventus lagði Lazio 2-0 á heimavelli í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag og jók forskot sitt á toppnum í fjögur stig.

Paulo Dubala kom Juventus yfir strax á fimmtu mínútu og ellefu mínútum síðar bætti Gonzalo Higuaín öðru marki við.

Þar við sat og langaði Juventus að lokum öruggum sigri.

Juventus er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Liðið er með 48 stig eftir 20 leiki. Lazio er með 40 stig eftir 21 leik í 4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×