Innlent

Lausar kennslustofur skiluðu sér ekki

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Leysa á húsnæðisvanda Hraunvallskóla fyrir árslok.
Leysa á húsnæðisvanda Hraunvallskóla fyrir árslok. Fréttablaðið/Vilhelm
Skólaráð Hraunvallaskóla í Hafnarfirði segir að vegna tafa á byggingu þriggja lausra skólastofa verði ekki kennt í húsunum fyrr en í janúar 2015.

„Er það mjög bagalegt þar sem lagt var upp með að húsin væru klár til notkunar í skólabyrjun 2014,“ segir skólaráðið sem einnig harmar að ekki hafi verið haft samráð við stjórnendur skólans um hönnun og framkvæmdir.

Fræðsluráð Hafnarfjarðar segir allt kapp verða lagt á „að leysa húsnæðisvandann til framtíðar, fyrir árslok 2014“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×