Innlent

Landsvirkjun 50 ára: Gróðursettu tré í Jóhannesarlundi við Búrfellsstöð

Atli Ísleifsson skrifar
Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar 1965 til 1995, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, við gróðursetningu fyrsta trésins í Jóhannesarlundi fyrr í dag.
Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar 1965 til 1995, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, við gróðursetningu fyrsta trésins í Jóhannesarlundi fyrr í dag. Mynd/Landsvirkjun
Sérstakur lundur til heiðurs Jóhannesi Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóra, var vígður í við Búrfellsvirkjun fyrr í dag í tilefni 50 ára afmælis Landsvirkjunar.

Jóhannesarlundur var vígður á samkomu núverandi og fyrrverandi starfsmanna fyrirtækisins í dag þar sem fimmtíu tré voru gróðursett, eitt fyrir hvert starfsár Landsvirkjunar.

Jóhannes var fyrsti stjórnarformaður Landsvirkjunar og gegndi hann því starfi í 30 ár og lét af störfum 30. júní 1995.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að fyrirtækið hafi verið stofnað 1. júlí árið 1965, í tengslum við byggingu Búrfellsvirkjunar. Stofnendur og helmingshluthafar hafi verið íslenska ríkið og Reykjavíkurborg en nú er ríkið eini eigandi fyrirtækisins.

„Í tilefni af 50 ára afmælinu hefur Landsvirkjun m.a. staðið fyrir opnum fundum um málefni er varða fyrirtækið. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og kalla á opin samskipti við hagsmunaaðila um allt land um málefni sem tengjast starfsemi fyrirtækisins.

Fyrir utan opinn ársfund fyrirtækisins í Hörpu 5. maí sl. hafa verið haldnir tveir fundir um loftslagsmál, fundir með íbúum á Norðausturlandi um Þeistareykjavirkjun og á Suðurlandi um stækkun Búrfells. Einnig bauð Landsvirkjun til fundar um þarfir gagnavera í júnímánuði. Aðsókn að fundunum hefur verið mjög góð. Hefur þeim öllum verið streymt beint á vefsíðu Landsvirkjunar, landsvirkjun.is, og er hægt að horfa á upptökur af fundunum á Youtube rás Landsvirkjunar www.youtube.com/landsvirkjun. Í haust verða haldnir fleiri opnir fundir.

Í tilefni af afmælinu mun Landsvirkjun einnig setja upp gagnvirka sýningu um orku og endurnýjanlega orkugjafa í Ljósafossstöð og verður hún opnuð síðar í sumar. Eftir sem áður verða orkusýningar Landsvirkjunar opnar í sumar í gestastofum við Kröflustöð og Búrfellsstöð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×