Lífið

Lætur ekki kinkí nágranna slá sig út af laginu

Ellý Ármanns skrifar
Ornella og hvolpurinn hennar.
Ornella og hvolpurinn hennar.
Fyrirsætan og leikkonan Ornella Thelmudóttir sem hefur búið í Los Angeles undanfarið ár lifir vægast sagt spennandi en þó frekar furðulegu lífi.   Hún er nýbúin að fá sér hvolp, nágranni hennar er sérstakur en burtséð frá því gerði leikkonan samning við umboðsskrifstofu á dögunum.

,,Ég er stolt að segja frá því að ég er nýkomin með samning hjá Next Management," segir Ornella þegar tal okkar hefst.

Hvað gerir þú svona helst? ,,Ég er mest að leika og módelast inn á milli. Mér var byrjað að leiðast að sitja fyrir svo ég vildi reyna að gera eitthvað allt allt annað. Ég elska að leika," svarar Ornella óhrædd við að breyta til.

,,Ég var í raunveruleikaþáttum (sjá link hér) og fór meðal annars á stefnumót með milljónamæringum. Já, það getur verið rosa fjör hjá mér," viðurkennir hún hlæjandi.



Nágranninn er vægast sagt stórskrýtinn

,,Það er ofsalega kósí að koma heim á kvöldin og horfa á tunglið og stjörnurnar en þegar þú horfir út um gluggann og sérð nágranna þinn nakinn að horfa á klámmynd með köttinn í fanginu breytist heildarmyndin," skrifaði Ornella á Facebook síðuna sína þegar hún kom heim eitt kvöldið í vikunni.   

Spurð út í þennan nágranna hlær hún og segir: ,,Guð þessi gaur er svo skrýtinn. Hann gerir þetta oft. Þetta er skelfir.  Hann hefur gæludýrin ofan á  sér á meðan hann horfir. Hann er ógeð."

,,Ég var að fá mér lítinn hvolp. Hann heitir Baby King," segir Ornella.
Ornella og plötusnúðurinn Ruben sem er þekktur í Los Angeles.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×