Lífið

Lady Gaga neyddi Matt LeBlanc til að velja á milli Monicu og Rachel

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Svarið kom á óvart.
Svarið kom á óvart. Vísir
Matt LeBlanc, betur þekktur sem Joey í Friends, þurfti að svara ansi erfiðri spurningu frá Lady Gaga á dögunum í spjallþætti James Corden.

Hún neyddi hann til þess að velja á milli Rachel og Monicu sem leiknar voru af Jennifer Aniston og Courtney Cox í þáttunum.

Matt varð vægast sagt vandræðalegur og stamaði allt þangað til að að hann gat svarað. Svar hans kom þá nokkuð á óvart, líkt og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×