Innlent

Kveikt í sólpalli við íbúðarhús í tvígang

Svavar Hávarðsson skrifar
Vegfarendur náðu að slökkva eldinn stuttu eftir að hann var kveiktur og eru skemmdir því ekki miklar.
Vegfarendur náðu að slökkva eldinn stuttu eftir að hann var kveiktur og eru skemmdir því ekki miklar. Fréttablaðið/Óskar
„Þetta er mjög óhugnanlegt og við fjölskyldan vitum ekkert hvað er þarna á ferðinni. Þetta er svo ótrúlegt að maður er eiginlega orðlaus,“ segir Davíð Guðmundsson rafmagnsverkfræðingur. Tvær helgar í röð hefur eldur verið lagður að sólpalli við íbúðarhús hans við Hásteinsveg. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur engan grunaðan um íkveikjurnar.

Rannsókn málsins hefst í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum, en atvikið er litið mjög alvarlegum augum enda er þetta önnur helgin í röð sem kveikt er í við húsið. Ennþá liggja engar upplýsingar fyrir um hver eða hverjir geta verið á ferðinni en lögregla bindur vonir við að um óvitaskap sé að ræða og málið risti ekki dýpra en það.

Boð frá Neyðarlínunni barst rétt fyrir miðnætti á páskadag, en slökkviliði var snúið frá stuttu síðar. Ástæðan var sú að fjórir ungir menn sem áttu leið um Hásteinsveg urðu varir við eldinn og notuðu meðal annars hjólbörur við að slökkva hann.

Davíð segir að íkveikjurnar hafi ekki átt sér neinn aðdraganda; engar hótanir eða annað hafi borist íbúum hússins. „Maður þekkir enga óvildarmenn hérna, enda er þetta lítið bæjarfélag. En þetta er sláandi og lítið þarf að gerast þegar eldur er lagður að trépalli til að þetta verði mjög alvarlegt,“ segir Davíð en börnin hans tvö voru ein heima á efri hæð hússins þegar eldur var lagður að pallinum um helgina, auk íbúa í kjallara. „Þau eru mjög slegin yfir þessu, eins og skiljanlegt er,“ segir hann.

Þegar spurt er hvort lögregla setji þessi atvik í samhengi við fjölda bruna í Vestmannaeyjum á undanförnum árum, en uppi er grunur um að brennuvargur gangi þar laus, er svarið að þessi tilteknu atvik hafi ekki verið sett í neitt slíkt samhengi.

Sjálfur dregur Davíð það einnig í efa að brunar undanfarinna ára og íkveikjurnar við heimili hans séu á einhvern hátt tengdar, enda hafi nefndir brunar allir verið í atvinnuhúsnæði í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×