Lífið

Krúttlegustu fagnaðarlætin: Þúsund fótboltastrákar ærðust þegar Arnór skoraði

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Þvílík fagnaðarlæti!
Þvílík fagnaðarlæti!
Íslendingar á öllum aldri horfðu á leikinn og fögnuðu sigri íslenska landsliðsins um allt land í gær og þá eru þó nokkrir staddir erlendis eins og kunnugt er. 

Krúttlegustu fagnaðarlætin hljóta samt að vera frá þessum rúmlega þúsund strákum á Orkumótinu í Vestmannaeyjum sem horfðu saman á leik Íslands og Austurríkis, síðasta leik F-riðils á Evrópumótinu í knattspyrnu, í íþróttahúsi í eyjunni.

Í lýsingu með myndbandinu segir: „Um 1500 manns, aðallega strákar sem taka þátt í Orkumótinu, fagna sigurmarki Íslands og sæti í 16 liða úrslitum EM í íþróttahöllinni í Vestmannaeyjum!“

Það hlýtur að vera sérstakt fyrir næstu kynslóð íslenskra fótboltamanna að fylgjast með hetjunum sínum ná þessum árangri, að komast í 16 liða úrslit á sínu fyrsta stórmóti.

Það virðist allavega vera svo því að það brjótast út ótrúleg fagnaðarlæti meðal drengjanna þegar Arnór Ingvi Traustason skorar sigurmarkið gegn Austurríkismönnum í gær. Þau vara í hátt í þrjár mínútur. Sjón er sögu ríkari.


Tengdar fréttir

Arnór: Leyfum þjóðinni að dreyma aðeins lengur

Arnór Ingvi Traustason innsiglaði sigur íslenska liðsins á Austurríki í gær með marki í uppbótartíma. Eftir orrahríð að marki íslenska liðsins afgreiddu okkar menn þetta með skyndisókn sem Arnór batt endahnútinn á.

Sigurlaunin sæt á Stade de France í gær

Íslenska landsliðið í fótbolta komst í 16 liða úrslit á Evrópumótinu í gær þegar strákarnir okkar unnu Austurríki, 2-1, á Stade de France. Eftir erfiðan leik voru það varamennirnir sem innsigluðu sigurinn í stærsta leik liðsins frá upphafi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×