Heilsa

Krúttlegar dýramyndir tengdar betri einbeitingu

Rikka skrifar
Þessi sprengir krúttskalann!
Þessi sprengir krúttskalann! Mynd/Skjáskot
Það eru fáir sem standast það að skoða myndir af litlum krúttlegum dýrum þegar þær eru fyrir framan okkur. Japanskir vísindamenn leiddu nýlega þá gleðilegu niðurstöðu í ljós að myndirnar hlýji okkur ekki einungis um hjartarætur heldur hafi jákvæð áhrif á okkur í vinnunni.

Vísindamennirnir komust að því að þeir sem að skoðuðu myndirnar bæði skiluðu betri afköstum í vinnunni og náðu betri einbeitingu en þeir sem að gerðu það ekki.

Er það þá ekki bara hin besta hugmynd að starfsmenn fyrirtækja taki sig saman og skoði reglulega krúttlegar myndir af litlum gæludýrum …. allt fyrir þágu vísindanna og betri afköstum í vinnunni?


Þeir sem að vilja meira má finna dásamlega þætti á Animal Planet sem heita Too Cute






Fleiri fréttir

Sjá meira


×