Fótbolti

Kristinn og félagar töpuðu á skondnu marki | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kristinn með trefil Columbus Crew.
Kristinn með trefil Columbus Crew. vísir/pjetur
Kristinn Steindórsson spilaði í rúmlega klukkustund þegar hann og félagar hans í Columbus Crew þurfti að lúta í lægra haldi fyrir New York Red Bulls í bandaríska fótboltanum í nótt. Lokatölur 2-1 sigur Red Bulls.

Kristinn var í byrjunarliðinu, en honum var skipt af velli á 64. mínútu, en þá var staðan jöfn 1-1. Bradley Wright-Phillips hafði komið Red Bulls yfir, en Tony Tchani jafnaði fyrir Columbus.

Þremur mínútum eftir að Kristinn fór útaf skoraði Mike Grella sigurmark Red Bulls, en það var í skrautlegra lagi. Grella "vippaði" boltanum yfir markvörð Columbus, en flestir markmenn hefðu nú verið þessa svokölluðu vippu. Markið var jafnframt þúsundasta mark Red Bulls í MLS-deildinni.

Markið má sjá hér að neðan, en Columbus er með þrjú stig eftir þrjá leiki. New York Red Bulls er á toppnum í austurdeildinni, með sjö stig eftir þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×