Íslenski boltinn

Kristinn aftur í KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Kristinn Jóhannes Magnússon er aftur genginn í raðir KR en það staðfesti hann við Fótbolta.net í kvöld.

Kristinn er uppalinn KR-ingur en gekk til liðs við Víking árið 2009. Hann gerði þriggja ára samning við vesturbæjarliðið.

Hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Víkingi síðustu árin og er þetta því mikill missir fyrir félagið en Kristinn Jóhannes varð samningslaus um miðjan síðasta mánuð.

„Ég er alsæll með þetta en auðvitað er erfitt að yfirgefa Víking, sérstaklega eftir gott gengin undanfarin tvö ár,“ sagði Kristinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×