Fótbolti

KR gæti spilað við Grasshoppers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bjarni Guðjónsson gæti farið með sitt lið til Sviss.
Bjarni Guðjónsson gæti farið með sitt lið til Sviss. vísir/anton
Nú eftir hádegi var dregið í 2. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar og íslensku liðin vita því hvað bíður þeirra ef þau komast áfram úr 1. umferðinni.

Valur mun mæta skoska liðinu Hibernian ef Valsmönnum tekst að komast fram hjá danska liðinu.

Ef Blikar klára lettneska liðið Jelgava þá spila þeir annað hvort við Partizani frá Albaníu eða slóvakíska liðið Slovan Braitslava.

KR spilar við norður-írska liðið Glenavon í fyrstu umferð og sigurvegari þeirrar rimmu spilar við svissneska liðið Grasshoppers sem Sigurður Grétarsson spilaði með á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×