Íslenski boltinn

KR fór létt með BÍ/Bolungarvík

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Gary Martin var í byrjunarliði KR
Gary Martin var í byrjunarliði KR mynd/stefán
KR tryggði sér sigur í A-riðli Lengjubikars karla í fótbolta þegar liðið lagði BÍ/Bolungarvík 4-0 í dag. KR var öruggt í 8 liða úrslit fyrir leikinn en nú er ljóst að liðið fer þangað sem sigurvegari riðilsins.

Emil Atlason skoraði strax á 17. mínútu og Almarr Ormarsson bætti öðru marki við fyrir hálfleik, 2-0.

Hafi BÍ/Bolungarvík gert sér einhverjar vonir um að stríða Íslandsmeisturunum þá hurfu þær líkt og dögg fyrir sólu þegar Grétar Sigfinnur Sigurðarson skoraði þriðja markið á 7. mínútu seinni hálfleiks.

Almarr Ormarsson skoraði annað mark sitt á 66. mínútu og lét KR þar við sitja. BÍ/Bolungarvík lauk leik í neðsta sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×