Lífið

Kourtney Kardashian og Scott Disick saman á ný

Anton Egilsson skrifar
Parið hafði verið saman í níu ár áður en upp úr sambandi þeirra slitnaði í júlí í fyrra.
Parið hafði verið saman í níu ár áður en upp úr sambandi þeirra slitnaði í júlí í fyrra. Vísir/Getty
Raunveraleikastjörnurnar Kourtney Kardashian og Scott Disick eru saman á ný. E News greinir frá þessu. Leiðir skildu hjá parinu í júlí í fyrra en þau hafa nú gefið sambandinu annað tækifæri.  

„Þau eru byrjuð aftur saman og ætla að gefa sambandi sínu annan séns. Það er vilji þeirra að láta þetta ganga upp barnanna vegna.“ Segir heimildarmaður í samtali við E News.

Fyrr í mánuðinum sáust þau saman í fríi í Cabo í Mexíkó án barna þeirra. Gaf það sögusögnum um að þau væru tekin aftur saman byr undir báða vængi.  Saman eiga þau þrjú börn. 

Parið byrjaði að hittast árið 2006 en samband þeirra verið stormasamt á köflum. Slitnaði upp úr sambandi þeirri í júlí í fyrra en sambandið hafði verið stormasamt. Kourtney fékk sig svo fullsadda þegar að myndir frá af Scott og stílistanum Chloe Bartoli, sem er fyrrverandi kærasta Scott, birtust í erlendum miðlum þar sem þau sáust láta vel að hvort öðru í Mónakó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×