Lífið

Kostuleg Donatella Versace tekur ísfötuáskoruninni

Donatella Versace
Donatella Versace Vísir/Getty
Í myndbandi sem fylgir fréttinni má sjá tískudrottninguna Donatellu Versace taka hinni svokölluðu ísfötuáskorun, en uppátækið hefur vakið kátínu netverja. Myndbandinu var hlaðið upp fyrr í dag.

Ísfötuáskorunin hefur undanfarið breiðst út eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Áskorunin gengur út á að taka upp myndband af sér að hella yfir sig fötu af ísköldu vatni og í leiðinni styrkja MND samtök eða rannsóknir. Þátttakendur skora svo á aðra að gera slíkt hið sama. 




Fjöldi heimsþekktra einstaklinga hefur tekið þátt í áskoruninni og jafnframt gefið stórfé til ALS, bandarísku MND samtakanna. Þeirra á meðal eru Oprah Winfrey, Justin Timberlake, Bill Gates, Lady Gaga og George Bush. Ríflega tíu milljónir dollara hafa safnast á dag til ALS samtakanna síðastliðna daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×