Lífið

Kosningaræður Trump orðnar að rapplagi: „I'm so good looking, I'm really rich“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tók sig saman og gerði rapplag þar sem textinn er eingöngu tekinn úr ræðum Donald Trump.
Tók sig saman og gerði rapplag þar sem textinn er eingöngu tekinn úr ræðum Donald Trump. Vísir/Getty
„Hann montar sig yfir því hversu mikinn pening hann á, hann sýnir konum enga virðingu og það eru alltaf slagsmál á tónleikunum hans,“ segir Roy Wood jr., einn af dagskrárgerðarmönnum The Daily Show sem sýndur er á HBO. „Allt sem Trump segir er beint úr orðabók rapparans.“

Donald Trump er þekktur fyrir að láta allt flakka í kosningabaráttu sinni og fannst Roy sig eitthvað kannast við aðferðir Trump. Hann sannfærði því stjórnanda The Daily Show, Trevor Noah, um að nota búta úr ræðum Trump til þess að búa til rapplag.

Noah var reyndar ekki á því en til þess að sannfæra þáttastjórnanda sinn ákvað Roy Wood að útbúa lagið. Hér að neðan má sjá myndbandið með laginu. Gott er að hafa í huga að texti lagsins er eingöngu tekinn úr ræðum Donald Trump en brot úr textanum má sjá hér fyrir neðan.

I'm so good looking.

I'm really rich.

Part of the beauty in me is that I am very rich.

Don't respect women … They know it's the opposite.

Arianna Huffington is unattractive






Fleiri fréttir

Sjá meira


×