Innlent

Konur eru gerendur í átta prósentum tilvika

Sunna Valgerðardóttir skrifar
Einungis ein kona hefur verið dæmd fyrir kynferðisbrot á Íslandi. Konan fékk skilorðsbundinn dóm fyrir að brjóta á annarri fullorðinni konu árið 2007.
Einungis ein kona hefur verið dæmd fyrir kynferðisbrot á Íslandi. Konan fékk skilorðsbundinn dóm fyrir að brjóta á annarri fullorðinni konu árið 2007. Fréttablaðið/Rósa
Engin kona hefur verið dæmd fyrir kynferðisbrot gegn barni hér á landi. Niðurstöður tveggja íslenskra rannsókna sem gerðar hafa verið á þolendum kynferðisbrota benda þrátt fyrir það til að gerendur séu konur í 7,5 til 8,5 prósentum tilvika þegar þolendur eru börn. Ein kona var sakfelld fyrir kynferðisbrot árið 2007 gegn annarri konu, sem var í fyrsta sinn síðan árið 1838 sem kona er dæmd fyrir kynferðisbrot.

Hrefna Ólafsdóttir félagsráðgjafi gerði viðamikla tíðnirannsókn á þolendum kynferðisbrota árin 2000 og 2001. Þar voru gerendur í langflestum tilvikum karlmenn, en konur voru um 7,5 prósent. Hrefna segir mikilvægt að slík tíðnirannsókn verði endurtekin bráðlega, þar sem umræðan hafi opnast mikið á undanförnum árum.

Félagsráðgjafarnir Hildigunnur Magnúsdóttir og Katrín Erlingsdóttir gerðu rannsókn á þolendum kynferðisbrota árið 2006 út frá svörum þeirra. Af 94 gerendum í rannsókninni voru átta konur, sem gerir um 8,5 prósent.

Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir mikilvægt að hafa í huga að opinberar tölur og dómar sem falla endurspegli ekki endilega veruleikann og oft síður en svo.

„Brot af þessu tagi, sem sæta svo mikilli þöggun, eru illa til þess fallin að gefa rétta mynd af veruleikanum,“ segir hún. „Niðurstöðum erlendra rannsókna á kyni gerenda ber ekki saman um hversu hátt hlutfall kvenna brýtur kynferðislega gegn börnum en rannsóknir sýna í auknum mæli að hlutur kvenna sem gerenda eykst og eru þessar konur oft í hópi ungra gerenda.“

Svala stendur fyrir málþingi í Háskóla Reykjavíkur á föstudag þar sem rætt verður um gerendur í kynferðisbrotamálum gegn börnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×